Hagnýtar upplýsingar

Hagnýtar upplýsingar

Að koma og fara
Leikskólinn leggur áherslu á að taka eigi vel á móti hverju barni svo það finni sig velkomið. Mjög mikilvægt er að foreldrar gefi sér tíma með barninu þegar komið er í leikskólann og einnig þegar það er sótt, svo það geti lokið við það sem það er að gera. Ætlast er til að foreldrar fylgi barninu inn á leiksvæðin. Það er nauðsynlegt að foreldrar láti starfsmann vita þegar þeir koma með barnið eða sækja það. Í heimastofunni er tekið á móti barninu. Þegar barnið er sótt, er það að leik ýmist inni eða úti. Foreldrar eru beðnir að tilkynna þegar annar en foreldri sækir barnið og skv. tillögum umboðsmanni barna er það rétt að það sé ekki barn yngra en 12 ára sem sækir eða kemur með barnið. Foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum á leið í og úr leikskólanum.

Afmæli barnanna - Þegar börn hætta
Afmælisdagur er stór dagur fyrir hvert barn. Haldið er upp á hann í leikskólanum. Það sama á við þegar barn hættir í leikskólanum. Mikilvægt er að samstarf sé á milli leikskólans og foreldranna um hvernig haldið er upp á þessa daga. Afmælisbarnið útbýr kórónu, við kveikjum á afmæliskertum, syngjum afmælissönginn og afmælisbarnið velur sögubókina sem lesin er í sögustundinni.

Persónulega hirslan
Hvert barn á sérstaka hirslu. Enginn annar má fara í hirslu barnsins án leyfis. Í hirslunni geymir barnið persónulega muni, svo sem myndir af fjölskyldu sinni eða einhverja hluti að heiman sem barninu þykir vænt um og/eða veita því öryggiskennd. Þar eru einnig oft geymdir hlutir sem barnið notar í leikskólanum til dæmis skæri, liti eða verkefni sem eftir er að ljúka. Það er fyrir barnið að eiga eitthvað persónulegt í leikskólanum þar sem að öðru leyti er svo mikið um samvinnu, samveru og sameign.

Klæðnaður barna
Mikilvægt er að klæðnaðurbarnsins sé þægilegur og hæfi veðri. Mikilvægt er að merkja fatnað barnsins. Nauðsynlegt er að barnið hafi með sér aukafatnað (nærföt, bolur, buxur, sokkabuxur, sokka, peysu) og geyma þau í körfunum í hólfunum í fataklefanum. Í leikskólanum vinnum við með ýmis efni s.s. liti, lím og málningu sem geta farið í föt barnanna. Þau börn sem nota bleiur koma með þær að heiman. Hólf, hillu og körfu barnsins þarf að tæma á föstudögum vegna þrifa.

Óhöpp, slys og veikindi
Börn í leikskólum Bláskógabyggðar eru slysatryggð á meðan þau dvelja í  leikskólanum. Ef barn verður fyrir slysi, eða veikist, er haft samband við foreldra. Náist ekki í þá eða ef um alvarlegt slys er að ræða er farið beint með barnið á heilsugæslustöð. Trygging tekur ekki til óhappa sem verða á fötum barnsins eða öðru sem það hefur með sér í leikskólann.
Ef barnið kemur ekki í leikskólann, vinsamlega látið okkur vita. Mikilvægt er að fá upplýsingar um breytingar í lífi barnsins til þess að við getum brugðist við ef barnið sýnir breytta hegðun í leikskólanum, s.s. breytta fjölskylduhagi, fjarveru forelda, utanlandsferðir o.fl.
Leikskólastarf í Gullkistunni er skipulagt með það í huga að öll börn geti tekið þátt í starfinu, bæði úti og inni. Veik börn eiga ekki að vera í leikskólanum. Börn þurfa að vera minnst einn dag heima, hitalaus eftir veikindi. Ef aðstæður í leikskólanum leyfa, þá er heimilt að hafa börnin inni tvo daga eftir veikindi. Athugið að barnið getur líka verið lasið þótt hiti sé ekki merkjanlegur. Foreldrar verða að meta hvort barnið er nógu hresst til að takast á við ,,vinnudag” í leikskólanum. Ef barnið má ekki vera úti eftir veikindi fer það ekki heldur í íþróttir í íþróttahúsi.
Við mælumst til að við séum ekki beðnar um að gefa börnum lyf og fylgjum leiðbeiningum frá Heilsugæslustöð Laugaráss. Til þess að geta orðið við beiðni um sérfæði þarf vottorð frá lækni því til stuðnings.

Fjarvistir barna
Vinsamlegast tilkynnið ef barn er fjarverandi til dæmis vegna veikinda eða fría.

Breytt heimilisfang og breytingar á högum
Foreldrum er skylt að tilkynna leikskóla breytingar á högum sínum svo sem breytt heimilisfang, símanúmer, vinnusíma og breytta
hjúskaparstöðu. Mikilvægt er að foreldrar láti vita um alvarleg veikindi eða dauðsfall í fjölskyldu barnsins.

Dvalartímar
Leikskólinn reynir að koma til móts við þarfir foreldra hvað dvalartíma varðar að því marki að það komi ekki niður á starfsseminni eða börnunum. Ef foreldrar óska eftir breytingu á eða viðbót við dvalartíma barnsins sækja þeir um hjá leikskólastjóra.

Dvalargjöld
Dvalargjöld eru innheimt með gíróseðli. Dvalargjald er greitt fyrirfram með gjalddaga 1. hvers mánaðar og er eindagi 20 dögum síðar. Hafi gjald ekki verið greitt á eindaga er send ítrekun sjö dögum seinna, en 50 dögum eftir gjalddaga fara ógreiddir gíróseðlar til frekari innheimtu sem hefur í för með sér stóraukinn kostnað fyrir greiðandann. Hafi vanskil varað lengur en 3
mánuði varðar það missi leikskólaplássins. Gagnkvæmur uppsagnarfrestur er 1 mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar. Ef barn er fjarverandi vegna veikinda eða annarra orsaka, greiða foreldrar fyrir leikskólarýmið, en geta óskað eftir því að fæðishluti gjaldsins falli niður vari fjarvistir meira en hálfan mánuð samfleitt.

Skipulagsdagar
Skipulagsdagar eru þrír á ári. Skipulagsdaga nota starfsmenn til að skipuleggja, undirbúa og endurmeta starf sitt. Þeir nýtast
einnig í námskeið og fyrirlestra. Leikskólinn er lokaður á skipulagsdögum og eru auglýstir með a.m.k. 4 vikna fyrirvara. Foreldrum er kynnt dagskrá skipulagsdags.
Sumarleyfislokun - Aðfangadagur og gamlaársdagur
Leikskólinn er lokaður í 6 vikur vegna sumarleyfa. Sumarleyfislokun er auglýst með löngum fyrirvara.  Leikskólinn er lokaður á aðfangadag og gamlaársdag.

Foreldrasamstarf
Gott samstarf foreldra og leikskóla er forsenda fyrir árangursríkri dvöl í leikskólanum og góðri líðan barnsins. Samstarf foreldra og leikskóla þarf að byggjast á gagnkvæmri virðingu og opnum samskiptum. Foreldrar eru ávallt velkomnir í leikskólann.

Foreldraviðtöl
Tilgangur foreldraviðtala er að veita gangkvæmar upplýsingar um barn, líðan þess og framgang. Foreldraviðtöl eru einu sinni á ári og oftar ef þörf krefur eða foreldrar óska.

Foreldrafundir
Tilgangur foreldrafunda er að miðla upplýsingum um uppeldisstarfið í leikskólanum. Í upphafi leikskólaársins eru foreldrar boðaðir á foreldrafund þar sem vetrarstarfiðer rætt. Aðalfundur foreldrafélagsins er haldinn á þeim fundi.

Fréttabréf
Leikskólinn gefur út fréttabréf til foreldra með helstu upplýsingum um starfið og hvað er efst á baugi hverju sinni.

Upplýsingatöflur
Upplýsingatöflum leikskólans er ætlað að koma á framfæri upplýsingum til foreldra. Foreldrar eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum á töflunni.
Leikskólaráðgjafi á Skólaskrifstofu Suðurlands er starfsmönnum leikskóla til ráðgjafar um fagleg málefni, samskipti og samstarf.