Faglegt starf

Leikskólinn Gullkistan er tveggja deilda leikskóli á Laugarvatni.  Yngri deildin heitir Bjarnalundur og eldri deildin Stóragil.  Nöfnin Gullkista, Bjarnalundur og Stóragil eru örnefni hér í sveitinni.  Skólinn rúmar 30 börn á aldrinum 12 mánaða til 6 ára og er  yfirskrift leikskólans „Útivist og umhverfi“. 

Leikskólinn starfar eftir Aðalnámskrá leikskóla, en einbeitir sér að starfsháttum/hugmyndafræði Reggio-Emilia.  Í dagskipulagi leikskólans fyrir vikuna er tekið á öllum náms og þroskaþáttum sem getið er um í aðalnámskrá, s.s. tónlist, hreyfingu, málrækt, útiveru, myndsköpun, náttúru og umhverfi og menningu og samfélagi. 

Allt starf með börnunum miðar að því að borin sé virðing fyrir þeim og náttúrunni.  Í Reggio Emilia starfsháttunum er barnið í fyrirrúmi, hvað barnið getur og hvað við leikskólafólkið getum gert fyrir barnið fyrir áfamhaldandi þroska og hamingju.  Hvert og eitt barn er einstakt.  Leikskólafólkið hlustar á barnið af virðingu og treystir því.  Öll börn hafa eitthvað til málanna að leggja.  Börn eru hugsandi verur sem eru með kollinn fullan af hugmyndum. 

Mjög mikil áhersla er lögð á útivist.  Öll börnin fara í útivist alla daga vikunnar og einn dagur í viku er alltaf fyrir utan leikskólagarðinn.  Börnin á eldri deildinni fara upp í skóg alla miðvikudaga og er farið kl. 9.00 og komið heim kl. 11.30.  Í skóginum fá börnin að leika sér frjálst, fara í þrautabrautir í skóginum, fá nesti, við syngjum og lesum sögur. 

Á Laugarvatni er mikið skólasamfélag.  Hér er leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli og háskóli.  Mjög mikið samstarf er milli skólastiga.  Sérstaklega er mikið samstarf milli leik- og grunnskóla.  Þau börn sem eru elst í leikskólanum fá einn skóladag í viku allan veturinn.  Þá fara þau með sínum hópstjóra inn í tíma hjá yngsta árganginum í grunnskólanum, fara í frímínútur og svo fara börnin í heimilisfræði hjá heimilisfræðikennara grunnskólans.