Um skólann

Leikskólinn Gullkistan

                  
Hér fyrir ofan má sjá logo leikskólans, hönnuður þess er Hildur Anna
(5 ára).   

Leikskólinn var stofnaður árið 1976. Aðalhvatamaður að stofnun hans var Jensína Halldórsdóttir skólastjóri Hússtjórnarskóla Suðurlands. Laugardalshreppur hefur frá stofnun leikskólans annast reksturinn, Bláskógabyggð tók við vorið 2002. Leikskólinn var nefndur Lind eftir húsinu sem leikskólinn var starfræktur í.

Í október 2005 hófst starfssemi leikskólans í nýju húsnæði og þá fékk leikskólinn nýtt nafn og heitir nú Gullkistan eftir hnjúk á Miðdalsfjalli. Miðdalsfjall heitir fjallið fyrir ofan bæinn í Miðdal. Uppi á því er klettaborg sem Gullkista heitir. Í henni á fjársjóður að vera fólginn en á því aðeins að finnast að tveir bræður búi í Miðdal og þeir gangi báðir aftur á bak heiman frá bæ upp að Gullkistu. Á leiðinni mega þeir aldrei líta um öxl, ekki víkja af réttri leið og ekki greina á hvar fara skuli. Verði brugðið út af þessu er þýðingarlaust að leita sjóðsins (heimild: Íslandshandbókin útgáfa 1995).

Leikskólinn heyrir undir Fræðslunefnd Bláskógabyggðar. Fulltrúi foreldra og starfsfólks eru áheyrnarfulltrúar í fræðslunefndinni auk leikskólastjóra.

Í leikskólanum er rými fyrir 30 börn.  Börnin eru á aldrinum eins árs til sex ára.