Fréttir

6. maí 2011Uppskeruhátíðin 12. maí

Mamma, pabbi, systkini, afi og amma

Mig langar að bjóða þér/ykkur á uppskeru- og útskriftarhátið í leikskólanum mínum. 
Hátíðin verður fimmtudaginn 12. maí og hefst kl. 14.15 og stendur til kl. 15.45.

Dagskrá:

  • Sýning verður um allan leikskólann af afrakstri vetrarins í máli og myndum.
  • Börnin syngja í nokkur lög.
  • Bananahópur, börn fædd 2005, verða með uppákomu.
  • Útskrift: Börnin sem fædd eru 2005 fá afhenta útskriftarmöppu.
  • Grill í garðinum, Foreldrafélagið sér um veitingar.

Vonumst til að sjá sem flesta,

allir í Gullkistunni