Kæru foreldrar og aðrir sem eru áhugasamir um leikskólastarfið í Gullkistunni.
Nú er vetrarstarfið að komast á fulla ferð. Skóladagatal leikskólans fyrir skólaárið 2010-2011 er tilbúið og komið á heimasíðuna. Í vetur verða börnin 23 í skólanum. Á Bjarnalundi eru 9 börn en á Stóragili eru börnin 14. Ein breyting er á starfsmannahópnum. Kolbrún Fjóla Arnarsdóttir nemi í Íþróttafræðum hóf störf hér 15. ágúst. Hún vinnur mest á Stóragili, en sér jafnframt um íþróttir fyrir öll börnin í skólanum. Við bjóðum Kolbrúnu velkomna. Dröfn Þorvaldsdóttir leikskólakennari hætti í maí sl. Við þökkum henni fyrir vel unnin störf og óskum henni velfarnaðar á öðrum vettvangi. Að öðru leyti er starfsmannahópurinn eins. Kristín Ingunn leikskólakennari er deildarstjóri á Stóragili og Elín Anna leikskólakennari er deildarstjóri á Bjarnalundi eins og var sl. vetur. Það er afar ánægjulegt að geta lagt upp í nýjan starfsvetur með að stærstum hluta sama starfsfólkinu og verið hefur. Breyting hefur orðið á stöðu Roswithu en hún vinnur nú á báðum deildum. Stöðugleiki í starfmannahópi og mikill mannauður er mjög áríðandi fyrir allt leikskólastarf. Við horfum því með tilhlökkun til vetrarstarfsins.
Leshópar starfsmanna leikskólans Gullkistu og leikskólans Álfaborgar í Reykholti halda áfram næsta vetur. Við ætlum að lesa meira um Glerfuglana, pæla meira í Reggio starfsháttunum, hugmyndafræði og læra meira.
Foreldrafundur verður 16. Sept kl. 17.00. Að þessu sinni ætlum við að bjóða foreldrum að koma í skógargöngu í Dvergheima. Dvergheimar er skógarlundur sem eldri börnin í leikskólanum fara í, einu sinni í viku og dvelja þar 2 – 5 klst. Við leik og störf. Foreldrum verður boðið upp á skógardrykk og ávexti.
Með kveðju og eigið góðan dag, Sólveig Björg Aðalsteinsdóttir, leikskólastjóri.