Bjarnalundur

Bjarnalundur

Í vetur höfum við sett okkur leiðarljós til að fara eftir í vinnu okkar með börnunum. Leiðarljós Bjarnalundar eru: 
          Að börnunum líði vel
          Að börnin fái að vera þau sjálf
          Að börnin fái að uppgötva, sjá og skynja
          Að börnin hafi tíma, tækifæri og örvandi efnivið til leikja
          Að LEIKURINN er númer 1, 2 og 3!
Á Bjarnalundi eru níu börn frá aldrinum eins árs til þriggja ára. Þeim er skipt í þrjá hópa eftir aldri. Hóparnir sitja saman við matarborðið í hádeginu, fara saman í fataklefann að klæða sig í útiveruna, fara í göngutúra og skógarferðir, myndlist hjá Roswithu og fara í hópastarf saman. Í hópastarfi er ýmislegt brallað saman svo sem skapandi starf með málingu, vatni, leir og tónlist, farið í leiki og skoðað annað leikefni. Í hópastarfinu gefst einnig tími til að spjalla um daginn og veginn, læra nöfnin á börnunum sem eru í hópnum og fleira.

            Myndir           Dagskipulagið haust 2011
            
                 Bláifroskahópur            Ljónahópur    
                                

 
                                                     
           Dagbók Bjarnalundar skólaárið 2008-2009